Eldeyjar

persian & exotic

Fréttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

28.03.2008

 

Loksins náði ég að setja inn myndir af kettlingunum á síðuna, það gengur mjög vel með þau og Itsy er mjög góð mamma. Hún gaut 4 kettlingum 6.Mars 2008 og það komu 2 svartir og hvítir bicolor fressar, 1 tortie læða og 1 calico læða.

Þau hafa öll fengið ættbókarnöfn núna sem eru ÍS*Eldeyjar Phantom of the Opera, ÍS*Eldeyjar Prince Charming, ÍS*Eldeyjar Piece Of My Heart og ÍS*Eldeyjar Perfect Little Rascal.

Það eru myndir af þeim 3 vikna á kettlingasíðuni undir P-got.

Þau eru öll frátekin og við erum með planað got seinna á árinu undan Eldeyjar Expect The Best (exo) og Eldeyjar I Wish I Had An Evil Twin.

 

Hér kemur svo ein sæt mynd af elstu tíkini okkar henni Lísu (11 ára) og calico læðuni "Dandy" 1 vikna.

 

 

 

 

 

 

11.03.2008

 

8-9 mars  mættum við á sýningu kynjakatta með 10 ketti , þau fengu öll mjög góða dóma og 8 voru NOM til úrslita á laugardeginum og 5 urðu Best in show ( öll úr okkar ræktun) og á sunnudeginum voru 7 NOM til úrslita og 4 urðu Best in show.

Á laugardeginum varð hann Eldeyjar Made in Iceland Junior winner og er annar kötturinn úr okkar ræktun sem fær þennan titil =)

Hann Eldeyjar Delicious Tuukka, JW var sá fyrsti á Íslandi til að fá þann titil.

 

Á laugardeinum var Eldeyjar I Wish I Had An Evil Twin í 2sæti um best snyrta persa sýningar og á sunnudeginum var Eldeyjar Cuddly n'Cozy besti snyrti persi sýningar :) , Eldeyjar Expect The Best keppti svo um best snyrta snögghærða köttinn á sunnudeginum.

 

Það eru komin inn úrslitin á síðuna okkar undir SÝNINGAR.

 

 

 

 

5.02.2008

 

Hún Itsy okkar er komin með littla sæta bumbu og á að gjóta í kringum 3 mars

Henni líður rosalega vel og reynir að flytja hann Teit okkar (Eldeyjar Made In Iceland) sem er 7 mánaða í gotkassan sinn hahaha =)

Við erum svo búin að skrá kisurnar okkar á sýninguna sem verður í reiðhöll gusts í kópavogi  8 og 9 mars.

Svo var ég ( Anna) að koma frá Svíþjóð 2 feb. þar sem ég var að læra hunda og katta nudd. Kisurnar eru mjög ánægðar með að hafa kattanuddara á heimilinu =)

 

 

 

22.11.2007

 

Hann Vódi okkar (GIP,ÍS*Eldeyjar Cuddly’n Cozy,DSM) varð stigahæðsti köttur ársins í category I 2007 og í 2 sæti yfir allar tegundir =)

Svo var hún Ísafold okkar í 2 sæti í cat. I (PR,ÍS*Arnardrangs Eldeyjar Ísafold) og í 4 sæti cat. I var hann Lubbi okkar (EC,ÍS*Mýrdals Red Rascal)

 

Svo var ég að setja inn nýjar myndir af littlu prinsessunum sem við ætlum

að halda eftir því þetta var seinasta gotið hennar Purpur (Arnardrangs Alicia) þær eru alsystur hanns Vóda .

Þær eru 3 mánaða á myndini og heita Eldeyjar Outstanding Lady In Red (Hildigunnur) rauð og Eldeyjar Outstanding Like My Mama (Garún) tortie.

 

 

 

 

 

 

19.10.2007

 

Við mættum á sýningu Kynjakatta 13-14 október með 9 ketti =)

Þetta var allveg ÆÐISLEG sýning og okkar köttum gekk mjög vel hann Mýrdals Red Rascal “Lubbi” okkar varð loksins EC !!!

Hann hefur mætt á allar sýningar frá því að hann var kettlingur og alltaf fengið stigið sitt og núna er hann 7 ára og náði titlinum EC (Evrópumeistari) við erum svo stolt af honum Lubba okkar !

Hann er fyrsti ógeldi kötturinn sem  hefur tekið öll sín sitg á íslandi og nær þessum titli svo  á íslandi !

Ræktandi hanns hún Hörn kom svo með þessa flottu köku á sýninguna =) TAKK !

 

 

Svo á sunnudeginum fékk Hann Lubbi okkar sitt fyrsta HP !! (heiðursverðlaun )

Lubbi fékk svo NOM og fór á móti honum Kormáki okkar og þar vann Kormákur og varð besti persa fress sýningar !

 

 

Hann Eldeyjar I Wish I Had An Evil Twin ( Kormákur) varð svo CH (meistari) á laugardeginum og fékk NOM og BOX  (Besti fullorðni köttur af gagnstæðu kyni ) báða daga.

 

Eldeyjar Cuddly’n Cozy, DSM (Vódi)var svo heiðraður fyrir að hafa verið fyrsti köttur á íslandi til að fá titilin DSM (Distinguished Show Merit) Hann náði þeim tittli á vorsýningu 2007.

Vódi varð svo GIP (Alþjóðlegur stórmeistari geldra )fékk svo stigin sín og varð svo NOM, BIS og 3BIC báða dagana.

 

Eldeyjar Made In Iceland (Teitur) fór á sýna fyrstu sýningu og gekk rosalega vel og varð NOM, BIS kettlingur báða dagana og 2BIC á laugardeginum , 4BIC á sunnudeginum !

 

Arnardrangs Eldeyjar Ísafold fékk stigin sín og varð NOM og BOX (Besti fullorðni geldi köttur af gagnstæðu kyni) báða dagana.

 

Eldeyjar Amadeus Mozart, Eldeyjar Expect The Best, Eldeyjar Miss Iceland, Siriuksen Mafalda,  fengu öll frábæra dóma og fengu stigin sín báða daga =)

 

 

 

22.06.2007

Í dag fórum við með Prinsessuna okkar í röntgen til að sjá hvort kettlingarnir væru of stórir fyrir hana að gjóta sjálf og á myndunum sáust 2 stórir kettlingar og það var mælt við grindina hennar og þeir voru því miður of stórir fyrir hana að gjóta sjálf. Svo hún var skorin í dag og hún eignaðist 1 svartan fress og 1 tortie spotted Læðu.

Það gengur mjög vel með þau og þau voru fljót á spena þegar mamma þeira kom úr aðgerð. Það eru myndir af þeim inná kettlingasíðuni undir M got . Þau fengu svo nöfnin ÍS*Eldeyjar Made In Iceland og ÍS*Eldeyjar Miss Iceland.

 

 

19.06.2007

Í dag fæddust fyrstu kettlingarnir hjá Itsy og Tuukka =) 1 svartur og hvítur bicolor fress & 1 svört og hvít bicolor læða !

Það gengur mjög vel með þau og það eru myndir af þeim inná kettlinga síðuni undir L got. Þau fengu nöfnin ÍS*Eldeyjar Lawdy Miss Clawdy og ÍS*Eldeyjar Love Me Tender

 

 

 

 

 

 

  21.04.2007

Við erum fluttar aftur heim til Íslands og eigum von á 2 gotum í júní.

Við vorum á sýningu Kynjakatta i mars þar sem okkar kisum gekk rosalega vel og hann IP,ÍS*Eldeyjar Cuddly'n Cozy varð BIS, 1BIC & best snyrti persi sýningar!

Uppfærslur á : Til sölu og Sýningar

 

 

 

 

 

 

 

21.01.2007

 Nýtt útlit á heimasíðunni :)

 

                                    

 

 

 

 

       

 

Image©Collin Bogle

Ylvas Design

©made by Sigga Tóta